7 ágú. 2019Í gærmorgun ferðuðust U16 drengir og fylgdarlið til Svartfjallalands þar sem þeir hefja leik á morgun á Evrópumóti FIBA 2019 en strákarnir leika í B-deild ásamt 23 öðrum þjóðum. 

Fyrsti leikur okkar drengja er á morgun 8. ágúst kl. 11:45 að íslenskum tíma (13:45 úti) þegar þeir mæta Sviss. Ísland leikur í C-riðli með heimamönnum frá Svartfjallalandi, Danmörku, Sviss, Úkraínu og Hvíta-Rússlandi. Eftir leiki í riðlinum taka svo við leikir í úrslitum og um sæti. 2 efstu liðin í hverju riðli fara beint í 8-liða úrslit og hin liðin leika um sæti 9.-24.

Í U16 drengja senda 49 þjóðir í Evrópu lið til keppni þetta sumarið, 16 eru í A-deild, 24 í B-deild og 9 lið eru í C-deild.

Hægt er að sjá alla dagskrá og nánari upplýsingar um mótið auk þess að hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði og beinum netútsendingum frá öllum leikjunum á heimasíðu mótsins: fiba.basketball/europe/u16b/2019

U18 drengja á EM er þannig skipað:
Alexander Óðinn Knudsen · KR
Aron Ernir Ragnarsson · Hrunamenn
Bragi Guðmundsson · Grindavík
Eyþór Orri Árnason · Hrunamenn
Friðrik Heiðar Vignisson · Vestri
Hjörtur Kristjánsson · Breiðablik
Ísak Júlíus Perdue · Þór Þorlákshöfn
Ísak Örn Baldursson · Snæfell
Ólafur Ingi Styrmisson · Fjölnir
Orri Gunnarsson · Stjarnan
Örvar Freyr Harðarson · Tindastóll
Sófus Máni Bender · Fjölnir

Hjalti Þór Vilhjálmsson þjálfari
Skúli Ingibergur Þórarinsson aðstoðarþjálfari
Atli Aðalsteinsson aðstoðarþjálfari
Davíð Örn Aðalsteinsson sjúkraþjálfari
Jóhannes Páll Friðriksson FIBA dómari á mótinu

#korfubolti