8 ágú. 2019

Vegna tónleika Ed Sheeran og viðburða tengda þeim verður lokað fyrir alla umferð í kringum Laugardalshöllina frá kl. 12:00 nk. laugardag en leikur Íslands og Sviss í undankeppni EM 2019 hefst kl. 13:00 í Laugardalshöll. Leiktíminn er um margt óvenjulegur vegna tónleikanna og mikils mannfjölda í Laugardalnum og því er fólki bent á að gera viðeigandi ráðstafanir.

Þar sem ekki er hægt að leggja bifreiðum í Laugardalnum á fyrrgreindum tíma vill KKÍ beina því til stuðningsmanna að leggja bifreiðum sínum löglega á opnum bílastæðum og þeir eru jafnframt hvattir til þess að kynna sér vel yfirlitsmynd um lokanir þessa helgina inn á slóðinni: https://senalive.is/vidburdir/ed/map/.

KKÍ og tónleikahaldarar hafi unnið í góðri samvinnu að þessu verkefni og er það von allra sem að viðburðunum koma að þessar lokanir valdi sem minnstum óþægindum.