29 ágú. 2019

Tölfræði námskeið KKÍ fer fram laugardaginn 21. september milli kl. 10:00-14:00 og fer fram í fundarsal í andyri nýju Laugardalshallarinnar (bíósalurinn). Námskeiðið er opið öllum og er hugsað fyrir bæði nýja og óvana tölfræðiskrásetjara sem og þá sem stattað hafa áður og ætla að halda áfram í vetur frá fyrri árum.

Námskeiðið er því mikilvægt fyrir öll félög í efstu tveim deildum sem verða með lifandi tölfræði í vetur frá sínum heimaleikjum. Hér geta nýjir aðilar lært grunninn og orðið tilbúnir til að hefja störf á komandi tímabili og reynslumeiri stattarar geta rifjað upp fræðin og miðlað þekkingu sinni einnig.

Jón Svan Sverrisson mun stýra námskeiðinu og kenna ásamt því að fara yfir ýmis praktísk atriði og áherslur fyrir veturinn.

Dagskrá námskeiðisins:

10:00-12:00: 
Bóklegt - tölfræðiskilgreiningar og kynning á forritinu. Verklag við að tengjast og ganga frá leikjum í lokin. Samskipti við Genius/KKÍ ef þarf.

12:00-12:15: 
Matur í boði Domino’s 

12:15-14:00: 
Verklegt - stattaður leikhluti eftir vídjói

Skráning fer fram hérna á kki.is

#korfubolti