30 okt. 2019

Ísak Ernir Kristinsson, FIBA dómari, dæmir sinn fyrsta leik í kvöld í verkefni fyrir FIBA en þá verður hann einn dómara í leik Bakken Bears frá Danmörku og Kataja Basket frá Finnlandi í FIBA Europe Cup. Leikurinn fer fram í Risskov í Danmörku.
Meðdómarar Ísaks verða þeir Charalampos Karakatsounis frá Grikklandi og Valentin Oliot frá Frakklandi og eftirlitsmaður Dainis Grinbergs frá Lettlandi.

Leikurinn hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma og verður hægt að fylgjast með tölfræði á heimasíðu keppninar:
www.fiba.basketball/europecup/19-20

Þetta er annar leikurinn í riðlinum en bæði lið töpuðu sínum fyrsta leik og því mikilvægur leikur fyrir þau bæði í kvöld. Með þeim í H-riðli eru Egis Kormend (UNG) og Legia Warzawa (PÓL).


KKÍ óskar Ísaki Erni góðs gengis í kvöld!

#korfubolti