29 jan. 2020Körfuknattleikssamband Íslands fagnar 59 ára afmæli sínu í dag en sambandið var stofnað þennan dag 29. janúar árið 1961. 

Að ári liðnu verður því stórafmæli á dagskrá þegar sambandið verður 60 ára og eru uppi hugmyndir um ýmsa skemmtilega viðburði tengda því tilefni árið 2021.

KKÍ óskar félögunum sínum og körfuknattleikshreyfingunni allri til hamingju með daginn.

#korfubolti