15 feb. 2020

Í úrslitaleik Geysisbikar karla mættust Grindavík og Stjarnan. Leikurinn var hin mesta skemmtun þar sem liðin sýndu flottan leik. Eftir jafna þrjá leikhluta reyndust Garðbæingar sterkari og lönduðu sigri 75-89 eftir að þeir sigu fram úr í fjórða leikhluta.

Það var mikið jafnræði með liðunum fyrstu þrjá leikhlutana og liðin voru að sýna sitt besta í sókninni. En í fjórða leikhluta sigu Stjörnumenn framúr og lögðu grunn að sigri sínum.

Ægir Þór Steinarsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 19 stig og gaf 14 stoðsendingar.

Tölfræði leiksins

Til hamingju Stjarnan