18 feb. 2020
KKÍ auglýsir miðaafhendingu til korthafa fyrir landsleik karlaliðsins gegn Slóvakíu 23. febrúar.

Leikurinn fer fram í Laugardalshöllinni sunnudaginn 23. febrúar kl. 20:00.
 
Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram eða til hádegis á leikdegi. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram útgefnum miðum á viðburðinn.
 
EINNIG ER SKÝRT TEKIÐ FRAM AÐ ENGA MIÐA VERÐUR HÆGT AÐ NÁLGAST EFTIR AFHENDINGARDAGINN SÍMLEIÐIS, MEÐ TÖLVUPÓSTI EÐA ÖÐRUM SKILABOÐUM TIL STARFSMANNA SAMBANDSINS.

Hvernig á að ná í miða?
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana sína rafrænt á netinu fram að leik með því að slá inn kennitölu sína (án bandstriks) á viðeigandi vefslóðunum hér fyrir neðan.
 
Handhafar appelsínugulra aðgöngukorta fyrir 1 nálgast miða hér:
1 miði: fyrir KKÍ-korthafa (appelsínugul kort): 

ÍSLAND-SLÓVAKÍA - https://tix.is/is/specialoffer/4z7u5jukjmlfc

Handhafar blárra aðgöngukorta fyrir 2 nálgast miða hér:
2 miðar fyrir KKÍ-korthafa (blá kort): 

ÍSLAND-SLÓVAKÍA - https://tix.is/is/specialoffer/zrhyx6vwznhei

Almenn miðasala fer fram á TIX:is:
https://tix.is/is/event/9602/island-slovakia/


Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

#korfubolti