6 mar. 2020Á stöðufundi mótsnefndar sem fór fram nú síðdegis var tekin sú erfiða ákvörðun að fresta Nettómótinu um ótilgreindan tíma. Mikil forsendubreyting varð í dag eftir fund Almannavarna síðdegis þar sem lýst var yfir neyðarstigi og í kjölfarið fóru afboðanir að berast í miklum mæli. 

Mótsnefnd mun senda út frekari upplýsingar um framhald mála á næstu dögum.

KarfaN, hagsmunafélag