14 mar. 2020

Öllum er ljóst að uppi eru algjörlega fordæmalausar aðstæður í þjóðfélaginu vegna heimsfaraldurs Kórónaveirunnar. Stjórn og starfsmenn KKÍ funduðu í morgun til að fara yfir þá stöðu sem upp er komin og hvernig bregðast skuli við með mótahaldið. Mótanefnd og stjórn KKÍ hefur til hliðsjónar h) lið 3. greinar reglugerðar um mótanefnd, en þar segir um hlutverk mótanefndar, „að gera tillögu að mótafyrirkomulagi til stjórnar KKÍ ef ljóst er að mótahald verði ekki með þeim hætti sem tilgreint er í reglugerð um körfuknattleiksmót.“ Í þeim aðstæðum sem uppi eru, þar sem ríkisstjórn Íslands að tillögu sóttvarnarlæknis hefur sett á fjögurra vikna samkomubann, er ljóst að mótahald verður ekki með þeim hætti sem tilgreint er í reglugerð um körfuknattleiksmót.
 
Í ljósi þessa hefur stjórn KKÍ ákveðið eftirfarandi:

  1. Íslandsmóti 2019-2020 er lokið í eftirfarandi flokkum og deildum. Í umræddum deildum og flokkum verður enginn deildar- eða Íslandsmeistari krýndur tímabilið 2019-2020.
    • 2. deild karla
    • 2. deild kvenna
    • 3. deild karla
    • unglingaflokkur karla
    • stúlknaflokkur
    • drengjaflokkur
    • 10. flokkur drengja og stúlkna
    • 9. flokkur drengja og stúlkna
    • 8. flokkur drengja og stúlkna
    • 7. flokkur drengja og stúlkna
    • minnibolti 11 ára drengja og stúlkna
    • minnibolti 10 ára drengja og stúlkna
    • minnibolti 9 ára og yngri, drengja og stúlkna

  2. Íslandsmóti Dominosdeilda karla og kvenna ásamt 1. deilda karla og kvenna er frestað meðan samkomubann er. Endanleg ákvörðun um framhald þessara deilda verður tilkynnt í síðasta lagi á miðvikudag 18.3.2020 þegar íþróttahreyfingin hefur fengið rými til að ræða frekar við sóttvarnarlækni og almannavarnir um þá stöðu sem er uppi og með hvaða hætti samkomu- og nálægðarbann hefur áhrif á íþróttahreyfinguna.

Ef stjórn KKÍ ákveður að ljúka keppnistímabilinu 2019-2020 í tveimur efstu deildum karla og kvenna, mun stjórnin funda áfram og ræða hvort og þá hvernig lið verði flutt milli deilda. Ótímabært er að fara nánar út í það á þessari stundu.