14 apr. 2020Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir:

Fjarnám 1. 2. og 3. stigs verður í boði núna í apríl sem er óvenjulegt en gert í ljósi þess að nemendur hafi hugsanlega góðan tíma til að sinna náminu þessa dagana. Námið hefst mánudaginn 20. apríl. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. 

Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar (KKÍ-hlutann) sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. 

· Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. 
· Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. 
· Þátttökugjald á 3. stig er kr. 40.000.-

Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir mánudaginn 20. apríl. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Slóð á skráningu á öll stig í aprílfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2020:
http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun

Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 og 863-1399 eða á netfanginu: vidar@isi.is