15 apr. 2020Hafin er skráning fyrir KKÍ þjálfari 1.b hlutann í þjálfaramenntun KKÍ.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið hérna

Um námskeiðið:
Námskeiðið er 20 kennslustundir sem kennt í fjarnámi. Í þessum hluta er farið ítarlega í leikreglur, mótafyrirkomulag KKÍ, sögu körfuknattleiks og unnið verkefni í tímaseðlagerð. KKÍ þjálfari 1.b gildir sem 35% af lokaeinkunn KKÍ þjálfara 1.

Leikreglur:
Farið er í leikreglur með fyrirlestri á netinu. Þjálfarar þurfa svo að standast reglupróf sem er aðeins bóklegt og gildir 20% af einkunn í KKÍ þjálfara 1. Ef þjálfarar vilja einnig sækja sér dómararéttindi þarf að bæta við verklegu dómaraprófi.

Mótafyrirkomulag KKÍ:
Þjálfarar kynnast mótafyrirkomulagi með fyrirlestri á netinu. Þjálfarar þurfa að standast krossapróf sem gildir 5% af lokaeinkunn KKÍ þjálfara 1.

Saga körfuknattleiks:
Þjálfarar fá senda fyrirlestra um sögu körfuknattleiks. Þjálfarar þurfa að standast krossapróf úr sögunni sem gildir 5% af heildareinkunn í KKÍ Þjálfara 1.

Tímaseðill:
Þjálfarar gera tímaseðil með FIBA Europe þjálfaraforritinu. Skila þarf inn tímaseðli fyrir 60 mínútna æfingu í minnibolta, á PDF skjali með tölvupósti á fræðslustjóra KKÍ. Verkefnið gildir 5% af lokaeinkunn KKÍ þjálfara 1.

#korfubolti