22 apr. 2020Vegna minnisblaðs um afléttingu samkomutakmarkana þann 4. maí nk. þá vill sóttvarnalæknir, Þórólfur Guðnason, árárétta eftirfarandi tillögur varðandi útfærslu afléttinga í skólum og íþróttastarfi. Varðandi íþróttir segir:

· Íþróttir miðist við takmarkanir fyrir íþróttastarf fullorðinna (sjá að neðan).
· Áfram er hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.
· Tveggja metra nándarreglan verði virt.

Íþrótta- og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólastigi:
·  Engar fjöldatakmarkanir verða settar á iðkendur.
·  Öll íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, inni og úti, verði leyfð.
·  Skíðasvæði verði opin fyrir æfingar barna og unglinga.
·  Sundlaugar, búnings- og sundaðstaða verði opin fyrir sundæfingar barna og unglinga.
·  Keppni í íþróttum barna á leik- og grunnskólastigi verði heimil án áhorfenda.
·  Hvatt verði til sérstaks hreinlætis og handþvottar.
·  Tveggja metra nándarreglan verði virt eins og hægt er.

Íþróttastarf fullorðinna:
·  Mest verði sjö einstaklingar með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll.
·  Mest verði fjórir einstaklingar með þjálfara á innisvæði sem miðast við handboltavöll.
·  Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði óheimil.
·  Hvatt verði til að tveggjametra nándarreglan verði virt.
·  Keppni í íþróttum fullorðinna verði óheimil nema ef hægt sé að uppfylla skilyrði um tveggja metra nándarreglu og að keppni sé án áhorfenda.
·  Sundæfingar fyrir fullorðna verði að hámarki fyrir sjö einstaklinga. Notkun búnings- og sturtuaðstöðu verði leyfð.
·  Áfram verði hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.
·  Sundlaugar verði lokaðar almenningi.

Líkamsræktarstöðvar:
·  Húsnæði líkamsræktarstöðva verði lokað en starfsemi utandyra leyfð. Mest verði sjö einstaklingar í hópum utandyra. Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði bönnuð.

Lagt er til að frekari aflétting samkomutakmarkana verði íhuguð 3-4 vikum eftir 4. maí 2020 og verði þá stefnt að 100 manna fjöldatakmörkunum, opnun sundlauga og líkamsræktarstöðva fyrir almenning með ákveðnum takmörkunum og að stærð kappleikja og íþróttamóta miðist við 100 einstaklinga. Þetta mun þó þurfa að miðast við stöðu faraldursins hér á landi.

Við hvetjum félög, leikmenn og þjálfara til að skoða vel og lesa upplýsingarnar hér að ofan. Ef eitthvað er óljóst eða spurningar vakna þá hikið þið ekki við að hafa samband við starfsmenn KKÍ.