28 maí 2020

Núna um mánaðarmótin klárast skráning í Domino's deildir karla og kvenna, 1. deildir karla og kvenna sem og í Geysisbikar karla og kvenna. Einnig lokar skráning í deildarbikar meistaraflokka um mánaðarmótin.

Skráning í aðra deildarkeppni meistaraflokka og yngri flokka hefur verið opnuð og stendur til og með 14. júní, það sama gildir um Geysisbikarkeppni umræddra flokka. Þetta á við um:

  • 2. deild karla
  • 3. deild karla
  • unglingaflokk karla
  • stúlknaflokk
  • drengjaflokk
  • 10. flokk stúlkna
  • 10. flokk drengja
  • Geysisbikar umræddra flokka
Búið er að staðfesta skráningu þeirra félaga sem hafa lokið sinni skráningu, en hægt er að sjá hvaða lið hafa lokið sinni skráningu á mótasíðu KKÍ undir hverri deild og flokki.