12 jún. 2020

Skráningu í deildarkeppni yngri flokka og neðri deilda meistaraflokka karla lýkur á sunnudaginn 14. júní nk.

Þetta er skráning í Íslandsmót 10. flokk drengja og stúlkna, drengjaflokk, stúlknaflokk og unglingaflokk karla ásamt bikarkeppnum þessara flokka. Einnig klárast skráning í 2. og 3. deild karla 14. júní. Allar skráningar sem hafa borist og eru staðfestar eru þegar sjáanlegar á mótavef KKÍ http://kki.is/motamal/leikir-og-urslit/motayfirlit/

Einnig rennur umsóknarfrestur fyrir keppnishelgar Íslandsmóts minnibolta, opin minniboltamót og umsjón með úrslitahelgum yngri flokka út 14. júní.