12 jún. 2020

 

 

ÁRÍÐANDI!  FRESTUR FRAMLENGDUR TIL OG MEÐ 19. JÚNÍ

 

 

Heil og sæl öll,

Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsóknum vegna sértækra aðgerða til og með föstudagsins 19. júní n.k.

Tölvupóstur sem sendur var á sambandsaðila þann 26. maí sl. með upplýsingum um þau gögn sem fylgja þarf umsókn og í viðhengi er umsóknareyðublað.

 Þeir aðilar sem geta sótt um í sértækar aðgerðir eru sérsambönd, héraðs- og íþróttabandalög, íþróttafélög með aðild að ÍSÍ og UMFÍ og deildir innan íþróttafélaga. Umsækjendur eru þeir sem orðið hafa fyrir tekjutapi vegna viðburða eða móta sem ákveðið hefur verið að fella niður eða breyta verulega vegna samkomubanns af völdum COVID-19 og hægt er að sýna fram á að hafi veruleg áhrif á rekstur og starf viðkomandi íþróttaeiningar.

 

Vinsamlegast sendið ofangreindar upplýsingar áfram til íþrótta- og ungmennafélaga innan ykkar vébanda.  

Afar mikilvægt er að þessar upplýsingar nái til allra þeirra sem geta sótt um ofangreinda styrki og því væri vel þegið ef þið gætuð auglýst þetta á ykkar miðlum eða vísað þar á tengil ÍSÍ inn á umsóknarsvæðið.

Tengillinn er eftirfarandi:

 

https://isi.is/um-isi/umsokn-vegna-covid-19/

 

Kær kveðja

Líney