16 sep. 2020

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar

 

Agamál  nr. 01/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar gegn Keflavík, sem fram fór þann 11. september 2020.

Agamál nr .02/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Lars Bragason, leikmaður KR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik KR gegn Haukum, sem fram fór þann 11. september 2020.