24 sep. 2020Í ljósi stöðunnar í COVID-19 faraldinum hefur KKÍ ákveðið að aflýsa tveimur fjölmennum fjölliðamótum um helgina, en keppni í minnibolta 11 ára var fyrirhuguð hjá drengjum í Grafarvogi hjá Fjölni og hjá stúlkum á Ísafirði hjá Vestra. KKÍ þykir afar leitt að þessi staða sé uppi, en þar sem um fjölmenn mót var að ræða taldi sambandið það samfélagslega ábyrgð sína að aflýsa þessum mótum.