24 sep. 2020Næstkomandi sunnudag þann 27. september fer fram hinn árlegi leikur meistara meistaranna hjá körlunum. 

Leikið verður í Garðabæ í Mathús Garðabæjar-höllinni á heimavelli fulltrúa Íslandsmótsins, deildarmeistara Stjörnunnar. Leikið er til skiptis á heimavelli Íslandsmeistara karla og kvenna, en árið 2019 fóru leikirnir fram í Valshöllinni á heimavelli Íslandsmeistara Vals. Í ár verða leikirnir stakir hjá konum og körlum og var leikið í Borgarnesi sl. sunnudag þar sem Skallgrímur lagði Val í úrslitaleik kvenna.

Leikur karla í ár er leikur deildarmeistara síðasta árs gegn fulltrúa bikarkeppninnar, en ekkert lið var krýnt íslandsmeistari í fyrra þar sem mótið var flautað af eins og allir vita og var þá Stjarnan krýnd deildarmeistarar í lokin og þar sem Stjarnan eru bikarmeistarar einnig þá er það mótherji þeirra úr úrslitaleiknum í fyrra, Grindavík, sem mætir sem fulltrúi bikarkeppninnar.

Meistarakeppni karla: 20:00 · Stjarnan-Grindavík

Leikurinn verður í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.