18 jan. 2021

Tveir leikir eru á dagskránni í kvöld í Domino's deild karla og verða þeir báðir sýndir beint á Stöð 2 Sport.

Áfram eru engir áhorfendur leyfðir á leikjum og því er hægt að styrkja félögin og kaupa "sýndarmiða" á leikina á smáforritinu (hægt að nálgast það hérna á stubbur.app), fylgjast með lifandi tölfræði á kki.is og horfa á leikina á Stöð 2 Sport. 


Leikir kvöldsins · Mánudagurinn 18. janúar
🏀 Haukar taka á móti Keflavík í kvöld kl. 18:15 í Ólafssal. 
🏀 Valur tekur á móti KR í Origo-höllinni að Hlíðarenda kl. 20:15. 

📲  #korfubolti  📲  #dominosdeildin