21 jan. 2021
Þann 1. janúar 2021 tóku gildi nýjar Alþjóðalyfjareglur (World Anti-Doping Code 2021) sem gilda munu næstu sex (6) árin. Samhliða því tóku nýjar Lyfjareglur Lyfjaeftirlits Íslands gildi, en þær byggjast á Alþjóðalyfjareglunum.
 
Þar sem Lyfjaeftirlit Íslands er sjálfstæð lyfjaeftirlitsstofnun, taka Lyfjareglur Lyfjaeftirlits Íslands við af Lögum ÍSÍ um lyfjamál og eru gildandi reglur í lyfjamálum á Íslandi.
 
Einnig tók gildi í dag nýr bannlisti WADA (The Prohibited List) en hér má finna bæði lyfjareglurnar og bannlistann: www.antidoping.is/loeg-og-reglur
 
Helstu breytingar á lyfjareglunum verða kynntar sambandsaðilum á næstunni og einnig munu ÍSÍ og Lyfjaeftirlit Íslands í sameiningu vera sérsamböndum ÍSÍ innan handar vegna skipulagningar fræðslu um lyfjamál á árinu 2021.
 
Ef einhverjar spurningar vakna, þá biðjum við ykkur um að hika ekki við að hafa samband við KKÍ og/eða Lyfjaeftirlit Íslands.