20 maí 2019Fimmtudaginn 23. maí nk. standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir opnum viðburði um hvernig hægt er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi. Viðburðurinn fer fram kl. 15:30-16:45 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, salur-E.

Léttar veitingar í boði. Starfsfólk íþróttahreyfingarinnar er sérstaklega hvatt til þess að mæta.


Skráning fer fram hérna

Dagskráin er eftirfarandi:

Kl. 15:30 Margrét Lilja Guðmundsdóttir, Rannsóknir og greining.
Hvað vitum við? Hversu mörg börn af erlendum uppruna taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi?
 
Kl. 15:45 Juan Camilo, ráðgefandi í æskulýðs og fjölmenningarfærni hjá
Unglingasmiðju Reykjavíkurborgar.

Fjölmenning á Íslandi. Hvernig koma Íslendingar fram við fólk af erlendum uppruna?
 
Kl. 16:00 Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, Íþróttabandalag Akraness.
Reynslusaga af verkefni. 
 
Kl. 16:15 Margrét Sigurvinsdóttir, Taekwondo deild Keflavíkur.
Reynslusaga af verkefni.
 
Kl. 16:30 Umræður
Hvaða verkfæri kallar íþróttahreyfingin eftir frá ÍSÍ og UMFÍ?