Hér á eftir fara nokkrar fróðlegar tölur sem stóðu upp úr eftir annan leik úrslitaeinvígis Njarðvíkur og Tindastóls á Sauðakróki á þriðjudag. Njarðvík vann leikinn 79-100 og má finna tölfræði leiksins (box score)[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2001/00001200/12000902.htm [v-] hér[slod-]. 19. Tindastóll mátti sætta sig við fyrsta tapið á heimavelli í vetur í 19. heimaleiknum. Tindastóll vann alla 11 leiki sína í deildinni á Króknum, báða í Kjörísbikarnum og hafði unnið fyrstu 5 leiki sína í Síkinu í úrslitakeppninni. 16 Logi Gunnarsson skoraði 16 af 36 stigum sínum í þriðja leikhluta þegar Tindastólsmenn gerðu 18 allir saman. Logi hitti úr 7 af 10 skotum sínum í fjórðungnum og 15 af 25 skotum sínum í leiknum en auk 36 stiga átti hann 5 stoðsendingar. Njarðvíkingar unnu leikinn í þessum fjórðungi skoruðu 28 stig í þriðja leikhluta og voru komnir 17 stigum yfir í lok hans. 27%-30%-32%-46% Tindastólsmenn hittu aðeins úr 28,6% skota sinna í fyrri hálfleik (42/12) en jákvæðast var fyrir Stólanna því að þeir bættu skotnýtinguna með hverjum fjóðrungi og nýttu að lokum 46,2% skota sinna í fjórða og síðasta leikhluta. Skotnýting Tindastóls eftir leikhlutum í öðrum leik: 1. leikhluti 22/6(27%) 2. leikhluti 20/6(30%) 3. leikhluti 22/7(32%) 4. leikhluti 26/12(46%) 11/8 Teitur Örlygsson hefur hitt úr 8 af síðustu 11 þriggja stiga skotum sínum í einvíginu. Teitur hefur nýtt 9 af 15 þriggja stiga skotum sínum (60%) í einvíginu og státar alls af 65% skotnýtingu í leikjunum tveimur (20/13). 13 Adonis Pomones leikstjórnandi Tindastóls klúðraði þrettán sóknum sjálfur í öðrum leiknum, misnotaði 10 af 12 skotum sínum og tapaði 3 boltum. Pomones hefur aðeins nýtt 5 af 20 skotum sínum (25%) og tapað 9 boltum til Njarðvíkinga í einvíginu til þessa. 58 af 79 Tindastólsmenn fengu 58 af 79 stigum sínum í leiknum frá stóru mönnum sínum, Shawn Myers (27), Svavari Birgissyni (19) og Michail Antropov (12) en þeir félagar nýttu 52,3% skota sinna í leiknum (42/22) og tók 29 fráköst saman þar af 17 í sókn. 7 Friðrik Stefánsson tók 7 af 16 fráköstum sínum í þriðja leikhluta þegar hann fór mikinn undir körfunni. Friðrik tók 4 af þessum fráköstum í sókn, auk þess að skora 3 stig, fiska 4 villur, verja 2 skot og gefa 2 stoðsendingar á þeim 8 mínútum sem hann lék í þriðja leikhluta. 11-10-11 Brenton Birmingham var með þrefalda tvennu í öðrum leiknum þrátt fyrir að vera veikur. Brenton skoraði 11 stig (9 í seinni hálfleik), tók 10 fráköst (6 í sókn) og gaf 11 stoðsendingar (6 í fyrri hálfleik). Brenton er með 18,5 stig, 8,5 stoðsendingar og 8 fráköst að meðaltali í leikjunum tveimur. Brenton nýtti reyndar skotin sín aðeins 31% (5 af 16) og tapaði 5 boltum og hefur alls tapað 13 boltum í leikjunum tveimur. 45 Alls tóku liðin 45 sóknarfráköst í öðrum leiknum, Tindastólsmenn 23 og Njarðvíkingar 22. Njarðvíkingar tóku flest sóknarfráköst í einum fjórðungi eða 9 í þriðja leikhluta en Stólarnir tóku að minnsta kosti 5 sóknarfráköst í öllum fjórðungunum og mest sjö í fjórða og síðasta leikhlutanum. 23-14 Tindastólsmenn fengu 23 stig út úr þeim sóknum sem þeir náðu að framlengja með sóknarfráköstum en Njarðvíkingarnir aðeins 14 (þrátt fyrir að taka 22 fráköst í sókn). Sex af þeim sóknum sem Njarðvíkingar framlengdu náðu ekki að skila körfu. Njarðvíkingar náðu sem dæmi að taka 5 sóknarfráköst í sömu sókn í öðrum fjórðungi en það dugaði þó ekki til þess að fá stig í þeirra sókn sem endaði með að Brenton Birmingham fékk dæmdan á sig ruðning. 37-19 Tindastólsmenn hafa fengið 18 fleiri stig frá bekknum heldur en Njarðvíkingar í fyrstu tveimur leikjunum eða 37 gegn 19. Varamenn Tindastóls skoruðu 12 stig í fyrsta leiknum (gegn 5) og 25 í öðrum leiknum (gegn 14). Vandamálið er að byrjunarlið Njarðvíkinga er að skora 63 stigum fleiri en kollegar þeirra hjá Stólunum (170-107). 8,8% Þriggja stiga skotnýting Tindastólsmanna er skelfileg í fyrstu tveimur leikjunum eða aðeins 8,8%. 31 af 34 skotum fyrir utan þriggja stiga línuna hafa misfarist og Stólarnir klikkuðu meðal annars á fyrstu 20 þriggja stiga skotum sínum í einvíginu. Á sama tíma hafa Njarðvíkingar gert 25 þriggja stiga körfur (úr 63 skotum, 39,7%) og fengið því 66 fleiri stig út úr þriggja stiga skotum en Sauðkrækingar (75-9). 16/4 Vítanýting Njarðvíkinga var hörmuleg í öðrum leiknum eða aðeins upp á 25% þar sem 12 af 16 vítum rötuðu ekki rétta leið. Njarðvíkurliðið hefur nýtt vítin sín undir 50% í leikjunum tveimur (48,3%, 29/14) á meðan Stólarnir hafa sett 62,8% sinna víta niður (43/27). 25,5 Mínútur að meðaltali sem Teitur Örlygsson hefur leikið í fyrstu tveimur leikjunum en samt hefur þessi snjalli framherji skorað 19 stig, tekið 6,5 fráköst, gefið 3 stoðsendingar og stolið 2 boltum að meðaltali auk þess að nýta 13 af 20 skotum sínum (65%) og státa af bestu skotnýtingu allra í einvíginu til þessa (af þeim sem hafa skorað að minnsta kosti 6 körfur). 17 Stig úr hraðaupphlaupum hjá Njarðvíkingum í fjórða leikhluta það er sóknum sem klárast áður en varnarliðið er komið fullskipað á varnarhelming. Alls skoruðu Njarðvíkingar 25 slík stig í leiknum gegn aðeins sex hjá Stólunum. 7 af 58 Skotnýting bakvarða Tindastóls í fyrstu tveimur leikjum er aðeins upp á 12%. Bakverðir liðsins hafa misnotað 51 af 58 skotum. Aðrar leikstöður liðsins státa aftur á móti af 49,5% skotnýtingu (101/50). Skotnýting bakvarða Tindastóls í fyrstu tveimur leikjunum: Adonis Pomones 20/5 (25%) Friðrik Hreinsson 10/2 (20%) Lárus Dagur Pálsson 17/1 (6%) Ómar Sigmarsson 10/0 (0%) Ágúst Ágústsson 1/0 (0%)