Íslenska landslið karla lék í kvöld fyrri leik sinn gegn landsliði Norðmanna í Bergen, en liðin mætast öðru sinni á morgun. Leikurinn er liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir forkeppni EuroBasket 2021 og er liðið í boði norska sambandsins sem heldur upp á 50 ára afmæli sitt í ár.

Eftir að hafa skoað aðeins fimm stig í öðrum leikhluta og lent 20 stigum undir í hálfleik, þá er skemmst frá því að segja íslenska liðið kom allt annað til leiks í seinni hálfleik og byrjaði fljótlega að minnka muninn hægt og rólega með betri varnarleik og skilvirkari sókn. Frábært kafli í lok leikhlutans og í byrjun fjórða leikhluta lagði grunninn að því að leikurinn varð jafn og þá sýndu íslensku strákarnir sínar bestu hliðar og lönduðu sigri 69:71, með yfirvegun og skynsömum leik og frábærri vörn.

Pétur Rúnar meiddist á upphafsmínútum leiksins og gat því ekkert spilað meira en hann fékk högg á nefið og verður væntanlega að hvíla á morgun. Þá varð Hjálmar Stefánsson fyrir fótameiðslum í gær á æfingu og gat ekki beitt sér í upphafi og var því hvíldur til að taka stöðuna á morgun. Allir leikmenn liðsins tóku þátt og lögðu sitt af mörkum sem skóp sigurinn. Virkilega flottur liðssigur í kvöld.

Stigahæstur var fyrirliðinn Ólafur Ólafsson með 19 stig og 3 fráköst. Haukur Óskarsson var með 13 stig og Collin Pryor var með 10 stig og 11 fráköst. Danero Thomas og Kristinn Pálsson skoruðu 8 stig hvor. Þá gáfu Kristinni Pálsson 5 stoðsendingar og Emil Barja 6 stoðsendingar og hann tók einnig 9 fráköst.

Tölfræði leiksins má sjá hérna: 

Næsti leikur er aftur kl. 16:00 að íslenskum tíma og verður hann aftur í beinni á Youtube-rás norska sambandsins og í lifandi tölfræði á netinu á www.basket.no.

#korfubolti