7 okt. 1999Hluti þeirra reglubreytinga sem verða í körfuboltanum á næsta ári verður reyndur í Eggjabikarkeppninni sem hefst í kvöld. Um er að ræða breyttan leiktíma 4x10 mínútur í stað 2x20 mínútur áður. Þá verður skotréttur eftir 4. villu í hverjum leikhluta. Hver leikmaður sem fær 5 villur fer af leikvelli eins og áður. Hlé á milli 1. og 2. og 3. og 4. leikhluta verður 2 mínútur. Leikhlé í hálfleik verður 10 mínútur. Auk þessara breytinga sem reyndar verða í Eggjabikarnum núna, verður skotklukkan 24 sekúndur frá og með næsta ári og sóknarlið hefur 8 sekúndur til að koma knetti yfir miðju í stað 10 sekúndna áður. Markmiðið með þessum breytingum er að gera leikinn hraðari.