8 nóv. 1999Dregið var í 16-liða úrslit bikarkeppni KKÍ&RENAULT í gær. Lið úr EPSON-deildinni mætast í tveimur viðureignum, en í hinum sex viðureignunum mæta EPSON-deildarliðin liðum úr 1. deild eða 2. deild. Dráttur fór sem hér segir: Hamar - Skallagrímur, Tindastóll - Stafholtstungur, Reynir S. - KR, UMFG - GG, KFÍ - ÍR, UMFN - Snæfell, Örninn - Haukar, Selfoss - ÍA. Leikirnir fara fram 11. og 12. desember.