18 nóv. 1999Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari hefur valið landsliðshópinn fyrir landsleikina við Úkraínu, Belgíu og Slóveníu, sem framundan eru í undanúrslitariðli Evrópukeppni landsliða á næstunni. Eftirtaldir leikmenn eru í hópnum:
Nafn                  Félag           Hæð Staða Aldur Landsl. 
Falur Harðarson       ToPo            185 Bakv.    31      93 
Herbert Arnarson      Donar Groningen 192 Framh.   29      79 
Páll Axel Vilbergsson Fleron          196 Framh.   21      12 
Friðrik Stefánsson    UMFN            204 Miðh.    23      25 
Fannar Ólafsson       Keflavík        198 Miðh.    21      12 
Jónatan Bow           KR              198 Framh.   33       6 
Hjörtur Harðarson     Keflavík        184 Bakv.    27      41 
Hermann Hauksson      UMFN            200 Framh.   27      48 
Guðmundur Bragason    Haukar          200 Miðh.    32     143 
Ólafur J. Ormsson     KR              190 Bakv.    23       0 
Hjörtur Hjartarson    ÍA              205 Miðh.    21       0 
Ægir Jónsson          ÍA              200 Miðh.    20       0 
Svavar Birgisson      Tindastóll      196 Framh.   19       0 
Hlynur Bæringsson     Skallagrímur    196 Miðh.    17       0 
Örlygur Sturluson     UMFN            186 Bakv.    18       0
Leikið verður í Úkraínu á miðvikudaginn í næstu viku, en Ísland leikur heima gegn Belgíu laugardaginn 27. nóvember. KKÍ hefur gert samning við EESÓ og Vífilfell, en þessi fyrirtæki bjóða landsmönnum frítt á leikinn. Þann 1. desember leikur liðið síðan útileik gegn Slóveníu. Sigurður Hjörleifsson þjálfari unglingalandsliðsins hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins og Ísak Leifsson verður sjúkranuddari liðsins eins og undanfarin ár. Fararstjórar í ferðinni til Úkraínu verða þeir Ólafur Rafnsson formaður KKÍ og Gísli Friðjónsson formaður landsliðsnefndar. Auk þessara 15 leikmanna eru þeir Teitur Örlygsson UMFN, Friðrik Ragnarsson UMFN og Gunnar Einarsson Keflavík í hópnum fyrir Evrópukeppnina, en þeir gefa ekki kost á sér að þessu sinni. Þá er Helgi Jónas Guðfinnsson Antwerpen ekki orðinn góður eftir meiðsl. Aðrir leikmenn í hópnum eru: Steinar Kaldal KR, Halldór Kristmannsson KFÍ, Hjalti Jón Pálsson Hamri og Guðjón Skúlason Keflavík.