22 nóv. 1999Ólafur Jón Ormsson landsliðsmaður gat ekki farið með landsliðinu til Kiev í dag vegna veikinda. Ólafur hélt til London með liðinu í gær, en í nótt veiktist hann og ekki var talið ráðlegt að hann héldi áfram með liðinu til Kiev. Hann er því á heimleið. Sem betur fer eru veikindi Ólafs ekki talin alvarlegs eðlis, um er að ræða magakveisu eða flesnu. Ekki hafa fleiri í hópnum veikst og því er ekki útlit fyrir að um smitandi faraldur sé að ræða.