11 okt. 2000KKÍ hefur sent framhaldsskólum landsins bréf og boðið þeim til þátttöku í hinu árlega framhaldsskólamóti sem stefnt er að að hefjist í næsta mánuði. Mótið er ætlað nemendum á aldrinum 16-22 (fæddir 1979 og síðar) ára og ekki hvað síst þeim sem ekki stunda körfubolta að öllu jöfnu. Hægt er að nálgast þátttökutilkynningu fyrir framhaldsskólamótið undir [v+]http://www.kki.is/eydublod.asp[v-]eyðublöð[slod-] hér á vefnum