25 okt. 2000Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari hefur valið 24 manna landsliðshópinn sem hægt verður að velja leikmenn úr fyrir Evrópuleikina í vetur. KKÍ þurfti að tilkynna FIBA hvaða leikmenn Ísland kynni að nota í Evrópuleikjunum í vetur fyrir 9. október sl. Friðrik Ingi mun síðan velja 15-16 leikmenn úr þessum hóp fyrir leikina gegn Úkraínu, Belgíu og Slóveníu í nóvember annars vegar og fyrir leikina gegn Makedóníu og Portúgal í janúar hins vegar. Ekki verður hægt að velja aðra leikmenn en eru á þessum lista. Eftirtaldir leikmenn eru á listanum: Helgi Jónas Guðfinnsson, Ieper Belgíu Herbert Arnarson, Valur Falur Harðarson, Keflavík Friðrik Stefánsson, Lappenrannan Finnlandi Guðmundur Bragason, Haukar Birgir Örn Birgisson, Keflavík Ægir Hrafn Jónsson, Hamar Hreggviður Magnússon, ÍR Jón Arnór Stefánsson, KR Ingvaldur Magni Hafsteinsson, KR Jón Nordal Hafsteinsson, Keflavík Logi Gunnarsson, UMFN Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík Steinar Kaldal, KR Ólafur Jón Ormsson, KR Jón Arnar Ingvarsson, Haukar Gunnar Einarsson, Keflavík Eiríkur Önundarson, ÍR Eyjólfur Örn Jónsson, Haukar Sigurður Þorvaldsson, ÍR Óðinn Ásgeirsson, Þór Ak. Páll Axel Vilbergsson, UMFG Arnar Snær Kárason, KR Pétur Guðmundsson, UMFG mt: Hreggviður Magnússon ÍR er einn af leikmönnum yngri kynslóðarinnar sem er í landsliðshópnum.