26 okt. 2000Hamar sigraði UMFG í Epson-deildinni í kvöld, 86-82 í Hveragerði og KR-ingar unnu sinn fyrsta sigur í deildinni, er þeir unnu Skallagrím með eins stig mun í Borgarnesi. Leikir kvöldsins voru æsispennandi og mjótt á munum á flestum vígstöðvum. Keflavíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram. Þeir unnu Tindastól 81-78 og eru nú eina taplausa liðið í deildinni. ÍR vann nauman sigur á Val í hörkuleik í Seljaskóla, 74-70, en jafnræði var með liðunum lengst af leiksins. Á Ísafirði töpuðu heimamenn í KFÍ fyrir Haukum, 82-88, og eru enn án stiga í deildinni. Á Akureyri töpuðu Þórsarar fyrir UMFN 90-104.