15 nóv. 2000Leifur Garðarsson hefur verið tilnefndur af FIBA til að dæma í Evrópukeppni bikarhafa og Evrópukeppni félagsliða. Hann mun dæma leik Basket Racing Paris gegn spænska liðinu Gaja San Fernando þann 12. desember. Sá leikur er í Evrópukeppni bikarhafa. Þann 13. desember dæmir hann leik Sarthe Basket frá Le Mans gegn Athlon Ieper, liði Helga Jónasar Guðfinnssonar. Sá leikur er í Evrópukeppni félagsliða. Leifur er einmitt að dæma hjá Helga Jónasi í dag.