22 nóv. 2000Ísland og Úkraínu mætast sem kunnugt er í landsleik í Laugardalshöll í dag kl. 18:00. Leikurinn er liður í undanúrslitakeppni Evrópumóts landsliða 2001. Mikill hugur er í íslenska hópnum fyrir leikinn og eru menn mjög ákveðnir í að gera sitt allra besta í kvöld. Úkraínumennirnir eru með hávaxið lið, en íslenska liðið er fremur lágvaxið. Gaman verður að sjá ungu strákana í íslenka liðinu gegn þessu sterka liði í kvöld og hvort íslenska liðið getur unnið stærðarmuninn upp með hraða, pressuvörn og langskotum. KKÍ skorar á alla körfuknattleiksunnendur að mæta í höllina og styðja við bakið á íslensku strákunum.