29 nóv. 2000Íslendingar áttu góðan leik gegn stóru liði Slóvena í Laugardalshöll í kvöld en töpuðu 80-90.Logi Gunnarsson var stigahæstur Íslendinga, átti sannkallaðan stórleik, skoraði 29 stig. Íslensku leikmennirnir virtust hálfsmeykir í byrjun leiks en þegar sá skjálfti rann af þeim sýndu þeir Slóvenum í tvo heimana og var leikurinn jafn allan tímann. Logi Gunnarsson var stigahæstur Íslendinga, átti sannkallaðan stórleik, skoraði 29 stig (8/11 í 2ja, 2/4 í 3ja og 7/7 í vítum), Ólafur Ormsson skoraði 15, Jón Arnór Stefánsson 14, Hreggviður Magnússon 10, Gunnar Einarsson 5, Friðrik Stefánsson 4 (8 fráköst, 6 stoðsendingar, 4 varin skot), Herbert Arnarsson 2 og Eiríkur Önundarson 1. Stigahæstur Slóvena var Tusek nr 10 með 23 stig. [v+]tolfraedi/statislslov.htm[v-]Tölfræði leiksins[slod-] Önnur úrslit í D-riðli í gær urðu þau að Portúgal tapaði heima fyrir Makedóníu 67-71 og Úkraína sigraði Belgíu 92-89.