1 feb. 2001Aganefnd KKÍ hefur dæmt Birnu Valgarsdóttur leikmann meistaraflokks Keflavíkur í eins leiks bann, en Birnu fékk dæmda á sig brottrekstrarvillu í leik KR og Keflavíkur í 1. deild kvenna á laugardaginn. Birna var í kjölfarið kærð til aganefndar KKÍ fyrir grófan leik. Birna tekur út leikbannið í leik Keflavíkur og KFÍ í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ & Doritos á laugardaginn.