15 feb. 2001Í kvöld fara fram leikir í 18. umferð Epson-deildarinnar. Hörkuleikir eru á dagskrá þar á meðal mætast bikarúrslitaliðin ÍR og Hamar í Seljaskóla og reyna vopn sín fyrir bardaginn í höllinni 24. febrúar. Í KR-húsinu taka Íslandsmeistarar KR á móti Haukum. Þessi leikur verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Þriðji leikurinn í Reykjavík verður viðureign Vals og Keflavíkur í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Suðurnesjum tekur Njarðvík á móti KFÍ og Grindavík mætir Skallagrím. Loks verður nágrannaslagur á Sauðárkróki, þar sem Tindastóll tekur á móti Þór. Leikir kvöldsins hefjast allir kl. 20.