17 feb. 2001Ekkert hefur enn verið hægt að fljúga til eða frá Ísafirði vegna veðurs. Af þeim sökum hefur leikjum ÍS og KFÍ í 1. deild kvenna verið frestað til sunnudagskvölds kl. 20 og mánudagskvölds kl. 20:15 í Kennaraskóla. Fjölliðamót í A-riðli 7. flokks karla sem átti að vera á Ísafirði um helgina hefur einnig verið frestað.