19 feb. 200140 ára afmælishóf KKÍ verður haldið nk. laugardag 24. febrúar kl. 18:15 -20:00 í félagsheimil Kópavogs. Meðal gesta í hófinu verða forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og Valdu Suurkask frá Eistlandi, forseti tækninefndar FIBA, Alþjóða körfuknattleikssambandsins. Í hófinu verður tveimur einstaklingum afhentur heiðurskross KKÍ, en aðeins einn einstaklingur hefur áður borið heiðurskrossinn. Það var Bogi Þorsteinsson fyrsti formaður KKÍ. Þá kemur bókin um sögu körfuknattleiks á Íslandi í hálfa öld formlega út í hófinu og verður afhent þeim sem keyptu bókina í forsölu.