5 okt. 2020Dregið var í 8-liða úrslit bikarkeppni yngri flokka á skrifstofu KKÍ í Laugardalnum í dag.

Almennt skal leika 8-liða úrslitin á tímabilinu 17.-24. október. Forðast skal að leika utan gluggans nema aðrir möguleikar eru ekki í stöðunni. Ljóst er að einhverjir leikir munu þurfa að fara fram utan gluggans þar sem fresta hefur þurft leikjum vegna sóttkvíar leikmanna.

Tekið skal fram að bikarleikir hafa eins og er, forgang yfir deildarleiki í íslandsmóti, en við færum þá til deildarleiki ef með þarf til að koma bikarleikjum fyrir. Miðað er við að leikir þar sem gestalið þurfa ekki að ferðast um langan veg fari fram á virkum dögum. Vinsamlegast komið þessum pósti áfram til þjálfara og þeirra sem sjá um að setja leikina á innan ykkar félags svo ekki verði töf á því að skila inn leiktíma. Hafi gestalið sérstaka ósk um leiktíma ber viðkomandi félag ábyrgð á því að koma þeirri ósk á framfæri við heimalið.
 
Heimalið á að skila inn leiktíma fyrir kl. 12:00 fimmtudaginn 8. október. Vísað er í 45. grein reglugerðar um körfuknattleiksmót, en þar segir: “Félag sem fær heimaleik skal finna leiktíma í samráði við mótanefnd innan tveggja virkra daga frá bikardrætti. Verði félag ekki við þessu skal mótanefnd víxla heimavöllum og fær það þá lið sem seinna var dregið heimaleik og skal þá, eftir að mótanefnd hefur tilkynnt svo með sannanlegum hætti, finna leiktíma í samráði við mótanefnd innan þriggja virkra daga. Verði það félag sem seinna var dregið ekki við þessu er mótanefnd heimilt að finna hlutlausan völl fyrir leikinn á kostnað viðkomandi félaga auk 20.000 kr. sektar sem rennur til KKÍ.”
 
Bent er á að dómarakostnaður í öllum bikarleikjum yngri flokka deilist jafnt milli leikaðila.
 
 
UNGLINGAFLOKKUR KARLA • Leikdagar: 17.-24. október
Þessi lið drógust saman
Stjarnan/Álftanes vs Grindavík
ÍR vs Keflavík eða Selfoss (Kef-Sel leikið 7.10.)
KR eða Þór Ak. vs Þór Þ. (KR-Þór AK. leikið 10.10.)
Fjölnir vs Haukar
 
 
STÚLKNAFLOKKUR • Leikdagar: 17.-24. október
Þessi lið drógust saman
Njarðvík eða Haukar vs Fjölnir (Nja-Hau leikið 5.10.)
Stjarnan eða KR vs Tindastóll (Stj-KR frestað v/sóttkvíar, á eftir að festa leiktíma)
Snæfell vs Þór Ak.
Keflavík vs Grindavík
 

DRENGJAFLOKKUR • Leikdagar: 17.-24. október
Þessi lið drógust saman
Stjarnan vs Keflavík
Breiðablik vs Fjölnir
Haukar c vs Stjarnan b
KR vs Breiðablik b
 
 
10. FLOKKUR STÚLKNA • Leikdagar: 17.-24. október
Þessi lið drógust saman
Fjölnir vs Haukar
Stjarnan vs Þór Þ./Hamar/Selfoss/Hrunamenn
Keflavík vs Tindastóll
KR vs UMFK
 
 
10. FLOKKUR DRENGJA • Leikdagar: 17.-24. október
Þessi lið drógust saman
Stjarnan vs ÍA
Haukar vs Fjölnir
Njarðvík vs Grindavík eða Afturelding (Gri-Aft vantar úrslit)
Keflavík vs Valur eða Vestri (Val-Ves leikinn 11.10.)
 
 
9. FLOKKUR STÚLKNA • Leikdagar: 17.-24. október
Þessi lið drógust saman
Stjarnan b vs Keflavík
ÍR vs Stjarnan
Valur eða KR vs Tindastóll (Val-KR vantar úrslit)
Skallagrímur vs Njarðvík
 
 
9. FLOKKUR DRENGJA • Leikdagar: 17.-24. október
Þessi lið drógust saman
Keflavík vs Stjarnan c
Stjarnan vs Haukar
Grindavík vs Fjölnir
Stjarnan b vs Njarðvík eða Selfoss (Nja-Sel frestað v/sóttkvíar, leiktími festur síðar)