26 okt. 2020Framundan er landsleikjagluggi hjá landsliði kvenna í körfuknattleik og hefur Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðsins, valið liðið sitt og þá leikmenn sem leika í landsliðsglugganum en hann er liður í undankeppni EM, EuroBasket Women’s 2021. 

Leikirnir fara fram í landsliðsglugga FIBA dagana 8.-15. nóvember og verða leiknir á Grikklandi í Heraklion á eyjunni Krít í öruggri „bubblu“ sem FIBA setur upp fyrir öll liðin í A-riðli undankeppninnar. Farið verður eftir ströngum reglum innan hennar með sóttvarnir. Leikirnir í undankeppninni hjá öllum liðum í nóvember áttu að vera heima og að heiman en hefur nú verið breytt fyrir alla riðla í einangraða leikstaði, líkt og NBA-deildinn vestanhafs gerði á Florída nú í haust. Íslenska liðið heldur utan 7. nóvember til Grikklands og æfir saman í „bubblunni“ en leikdagar verða 12. og 14. nóvember.

Tveir nýliðar í hópnum, þær Katla Rún Garðarsdóttir, Keflavík, og Eva Margrét Kristjánsdóttir, Haukum.
Alls eru þrettán leikmenn í hópnum en nýliðinn Anna Ingunn Svansdóttir frá Keflavík er 13. leikmaður liðisins og mun æfa og ferðast með liðinu og vera til taks ef gera þarf breytingar á liðinu í verkefninu. 

Eftirtaldir leikmenn skipa hópinn:

Nafn · Félag (landsleikir)
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (2)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (4)
Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (Nýliði)
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur (20)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (21)
Hildur Björg Kjartansdóttir · Valur (32)
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik (4)
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík (Nýliði)
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (2)
Sara Rún Hinriksdóttir · Leicester, England (19)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (53)
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar (17)
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)

Þjálfarar og fararteymi:
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Danielle Rodriguez
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir
Fararstjóri: Hannes S. Jónsson
Sóttvanrarfulltrúi: Guðbjörg Elíasdóttir Norðfjörð
Liðstjórn: Kristinn Geir Pálsson