17 nóv. 2020Framundan dagana 23.-29. nóvember er landsliðsgluggi karlalandsliðsins og verður líkt og hjá konunum leikið í sóttvarnar „bubblu“ á vegum FIBA og fer hún fram í Bratislava í Slóvakíu. Craig Pedersen, landsliðsþjálfari, hefur valið liðið sitt fyrir leikina tvo en þá mætir Ísland fyrst Lúxemborg þann 26. nóvember og svo Kosovó þann 28. nóvember. 

Leikirnir nú í þessum öðrum glugga eru liðir í forkeppni að HM 2023 en þetta er annar af þrem landsliðsgluggum í þessum riðli. Sá seinni er á dagskránni í febrúar 2021. Tvö efstu liði riðilsins fara áfram í forkeppnina sem leikin verður í ágúst næsta sumar.

Leikirnir í undankeppninni hjá öllum liðum í nóvember áttu að vera heima og að heiman en hefur nú verið breytt fyrir alla riðla í einangraða leikstaði. Til að mynda átti Ísland að eiga tvo heimaleiki en leikur nú tvo leiki ytra. 

Enginn nýliði er í hópnum að þessu sinni en þrettán leikmenn voru valdar í verkefnið. Ragnar Ágúst Nathanaelsson frá Haukum er 13. leikmaður liðisins og verður hluti af liðinu, ferðast með og æfir með liðinu og verður til taks ef gera þarf breytingar á liðinu í verkefninu af einhverjum ástæðum. 

Eftirtaldir leikmenn skipa hópinn:

Breki Gylfason · Haukar (7)
Elvar Már Friðriksson · BC Siauliai, Litháen (46)
Gunnar Ólafsson · Stjarnan (20)
Haukur Helgi Briem Pálsson · MoraBanc Andorra, Spánn (68)
Hjálmar Stefánsson · CD Carbajosa Basket, Spánn (16)
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík (84)
Jón Axel Guðmundsson · Fraport Skyliners, Þýskaland (11)
Kári Jónsson · Haukar (12)
Sigtryggur Arnar Björnsson · Grindavík (10)
Tómas Þórður Hilmarsson · CD Carbajosa Basket, Spánn (6)
Tryggvi Snær Hlinason · Zaragoza, Spánn (39)
Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan (62)

13. leikmaður hópsins:
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Haukar (47)

Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Hjalti Þór Vilhjálmsson
Sjúkraþjálfari: Halldór Fannar Júlíusson
Fararstjóri: Hannes S. Jónsson
Sóttvarnarfulltrúi: Jón Bender
Liðsstjórn: Kristinn Geir Pálsson

Leikmenn sem gátu ekki verið með að þessu sinni eru Martin Hermannsson, sem er að keppa í EuroLeague með sínu liði á sama tíma og kemst ekki frá. Kristófer Acox ætlaði að taka þátt en þurfti að draga sig úr verkefninu v/ meiðsla. Þá gáfu þeir Brynjar Þór Björnsson, Collin Pryor, Ólafur Ólafsson, Pavel Ermolinskij og Sigurður Gunnar Þorsteinsson ekki kost á sér að þessu sinni. 

Íslenska liðið heldur utan 21. nóvember til Slóvakíu og munu leikmenn frá liðum í Evrópu ferðast um helgina til Bratislava og svo æfir liðið saman í „bubblunni“ en leikdagar verða eins og áður segir 26. og 28. nóvember og verða báðir leikir liðsins sýndir í beinni á RÚV.

Það skal tekið fram að KKÍ hefur mótmælt því formlega áður að leikirnir fari fram og ítrekaði það aftur fyrir helgi. FIBA hefur svaraði þeim mótmælum og segir að glugginn verði haldið óbreyttum á dagskrá.

Heimasíða keppninnar er að finna hérna