23 nóv. 2020Nú er íslenska landslið karla í körfuknattleik að safnast saman í Bratislava í Slóvakíu í sóttvarnar „búbblunni“ sem FIBA heldur fyrir leikina í forkeppni að HM 2023. 
Í riðli með Íslandi leika Lúxemborg, Kosovó og Slóvakía.

Framundan eru tveir leikir í þessum komandi landsliðsglugga, fyrst gegn Lúxemborg sem fram fer á fimmtudaginn 26. nóvember, og svo gegn Kosovó laugardaginn 28. nóvember. Báðir leikirnir hefjast kl. 15:00 að íslenskum tíma og verða í beinni útsendingu á RÚV.

Í kvöld verða allir leikmenn mættir á liðshótelið fyrir utan Hauk Helga Briem Pálsson sem ferðast til Slóvakíu á þriðjudags- eða miðvikudagskvöld frá Andorra en hann þarf að skila neikvæðri niðurstöðu úr seinni COVID skimuninni sinni áður en hann mætir á svæðið og inn í „bubbluna“. 

Haukur Helgi hafði greinst með kórónaveiruna í upphafi mánaðarins en hann hefur jafnað sig og er búinn að mælast neikvæður fyrir helgi og er með mótefnamælingu úr blóðprufu en samkvæmt reglum FIBA þarf að skila þessari seinni niðurstöðu úr prófi sem hann fer í á morgun þriðjudag.

Mikil vinna fór í að ná saman lausum endum til að láta allt ganga upp og nú er það allt frágengið. Það er því ljóst að allir leikmenn og starfsmenn komast í „bubbluna“ og verða klárir fyrir fyrsta leik gegn Lúxemborg. Það fer vel um liðið á hótelinu og mannskapurinn er kátur að hittast og vera saman. Framundan er fyrsta liðsæfing hópsins í keppnishöllinni seinnipartinn og verður æft áfram á morgun og miðvikudag í undirbúningi liðsins fyrir leikina tvo.