4 des. 2020

KKÍ auglýsir eftir umsóknum á þjálfaranámskeið FIBA Europe, FIBA Europe Coaching Certificate (FECC). Um er að ræða evrópskt þjálfaranám sem spannar þrjú sumur, árin 2021, 2022 og 2023. Umsækjandi þarf að skuldbinda sig í þrjú ár sem þátttakandi í þessu námi, en krafist er 100% mætingar á alla þætti námsins til að ljúka því. Vakin er athygli á því að FIBA óskar eftir þjálfurum sem eru að þjálfa börn og unglinga eða eru virkir þátttakendur í uppbyggingu barna- og unglingastarfs hjá félögum.

KKÍ á eitt öruggt pláss á námskeiðinu en möguleiki á öðru er fyrir hendi en það kemur í ljós þegar allar þjóðir hafa sent umsóknir sínar inn. Þátttakendur bera kostnað við flug og uppihald en námskeiðið sjálft er gjaldfrjálst. KKÍ veitir styrk að upphæð 75.000 kr. fyrir hvert ár sem þátttakandi tekur þátt í náminu.

Áhugasamir senda inn umsókn með ferilsskrá til KKÍ á netfangið kki@kki.is. Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 þann 18. desember næstkomandi.
 
Átta íslenskir þjálfarar hafa klárað FECC þjálfarnámið:

  • Einar Árni Jóhannsson 2011.
  • Lárus Jónsson 2013.
  • Hjalti Þór Vilhjálmsson 2013.
  • Ágúst S. Björgvinsson 2015.
  • Ingi Þór Steinþórsson 2015.
  • Hallgrímur Brynjólfsson 2018.
  • Margrét Sturlaugsdóttir 2019.
  • Sævaldur Bjarnason 2019.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Örn Arnaldsson á skrifstofu KKÍ.