22 jan. 2021

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í einu agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Arnar Smári Bjarnasson leikmaður Vestra, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vestri gegn Selfoss, sem fram fór þann 15.janúar 2021.