27 jan. 2021

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar. 

 

Agamál 18/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Dedrick Deon Basile, leikmaður Þórs Akureyri, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Þór Akureyri gegn Stjörnunni, sem fram fór þann 17.janúar 2021.

Agamál 19/2020-2021

Aga- og úrskurðarnefnd barst atvikaskýrsla þann 18.01.21. vegna leiks Skallagríms og Hamars í 1. deild mfl. karla, sem leikinn var þann 15. janúar 2021, vegna brottvísunar í kjölfar tveggja tæknivilla sem veittar voru hinum kærða, Marínó Þór Pálmason leikmaður Skallagríms. Með vísan til ákvæðis 4. mgr. 8. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarnefnd er málinu vísað frá þar sem atvikaskýrsla barst of seint.

 

 Agamál 20/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Róbert Sigurðsson, leikmaður Álftanes, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnir gegn Álftanes, sem fram fór þann 21.janúar 2021..