30 jan. 2021

Íslenska kvennalandsliðið hélt af stað í dag í landsliðsgluggann sem framundan er í Ljubljana í Slóveníu. Vegna takmarkaðra möguleika í flugsamgöngum hélt hópurinn af stað í dag og flaug með Icelandair til Amsterdam og dvelur nú á flugvallarhóteli þar í góðu yfirlæti. Hópurinn ferðast svo á morgun á áfangastað og tekur sína fyrstu æfingu seinnipartinn á morgun í Ljubljana. 

KKÍ þakkar Icelandair og VITA fyrir mikla og góða aðstoð við að koma ferðlaginu heim og saman og liðinu til og frá keppni í þennan febrúar glugga.

Leikirnir fara fram í landsliðsglugga FIBA dagana 31. janúar-7. febrúar og verða leiknir eins og áður hefur komið fram í Slóveníu í öruggri „bubblu“ sem FIBA setur upp fyrir öll liðin í A-riðli undankeppninnar. Farið verður eftir ströngum reglum innan hennar með sóttvarnir. Leikirnir í undankeppninni hjá öllum liðum í nóvember og nú í febrúar áttu að vera heima og að heiman líkt og venjulega en var breytt fyrir alla riðlana níu í keppninni í einangraða leikstaði á nokkrum leikstöðumlíkt. Íslenska liðið heldur utan 30. janúar til Slóveníu og æfir saman ytra í „bubblunni“ fyrir leikina en leikdagar verða 4. febrúar gegn Grikkjum og 6. febrúar gegn heimastúlkum í Slóveníu.

Báðir leikirnir verða sýndir beint á RÚV.

Eftirtaldir leikmenn skipa landsliðs Íslands í leikjunum tveim:

Nafn · Félag (landsleikir)
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (Nýliði)
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (4) 
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (6)
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík (9)
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur (22)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (21)
Hildur Björg Kjartansdóttir · Valur (32)
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik (6)
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (4)
Sara Rún Hinriksdóttir · Leicester Riders, England (21)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (55)
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar (19)

Þjálfarar og fararteymi:
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Danielle V. Rodriguez
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir
Fararstjóri: Hannes S. Jónsson
Sóttvanrarfulltrúi: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir
Liðstjórn: Kristinn Geir Pálsson

Heimasíða mótsins: fiba.basketball/womenseurobasket/2021/qualifiers