4 mar. 2021

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í einu agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar. 

Agamál 29/2020-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jónas B. Reynisson, leikmaður Suðurlands, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Breiðabliks gegn Suðurlandi, sem fram fór þann 23. Febrúar 2021.