10 mar. 2021

Að beiðni yfirvalda hafa leiðbeiningar HSÍ og KKÍ um framkvæmd æfinga og leikja verið uppfærðar. Helstu breytingar snúa að því að frá 10. mars verður nauðsynlegt að allir áhorfendur verði í númeruðum sætum á leikvelli. Áhorfendur verða að vera í því sæti sem þeim er úthlutað, ekki verður heimilt að skipta um sæti eða færa sig til í annað sæti á leikstað. Sætisnúmer skulu vera með í skráningu áhorfenda. Uppfærðar leiðbeiningar má nálgast á heimasíðu KKÍ.

Breytingar á leiðbeiningum, grein 6:

  • Allir gestir séu sitjandi í númeruðum sætum og ekki andspænis hvor öðrum. Númera skal sæti svo 1m er að lágmarki í næsta áhorfanda á alla kanta. Áhorfendur skulu sitja í því sæti sem þeim er úthlutað, ekki er leyfilegt að skipta á sætum.
  • Allir gestir séu skráðir, a.m.k. nafn, kennitala, símanúmer og sæti. Geyma þarf upplýsingar um áhorfendur í tvær vikur eftir viðburð vegna rakningar.

Í framhaldi viljum við biðja félögin að senda inn á sitt sérsamband teikningu þar sem sést sætaskipan (þar sem hvert sæti sést með númeri). Þetta er gert til að auðvelda smitrakningu. Félögin halda eftir sem áður um skráningu á leikjum ef til smitrakningar kemur.

Heimalið eru framkvæmdaraðilar á leikjum og það er því á þeirra ábyrgð að leikirnir fari fram samkvæmt leiðbeiningum sérsambandanna. Við viljum sérstaklega minna á grímuskyldu, en þó nokkuð hefur borist af ábendingum um að henni sé ekki sinnt eins og krafa er um. Minnt er sérstaklega á ábyrgð íþróttahreyfingarinnar í því að fá að taka á móti áhorfendum á kappleiki, en til að svo verði áfram þarf að tryggja að framkvæmd reglnanna verði góð. Áhorfendur verða að bera grímu á leikstað, og starfsmenn í gæslu þurfa að tryggja að reglum um grímuskyldu sé framfylgt. Nauðsynlegt er að vísa þeim einstaklingum sem vilja ekki eða ætla ekki að framfylgja reglunum af leikstað.

Eftir fréttir helgarinnar er mikilvægt að íþróttahreyfingin taki sóttvarnir föstum tökum og sýni ábyrgð bæði á æfingum og í leikjum. Það er mikið undir hjá okkur öllum þegar sól hækkar á lofti og styttist í úrslitakeppni í öllum flokkum.