14 apr. 2021KKÍ í samvinnu við Rafíþróttasamtök Íslands mun Ísland taka þátt í FIBA Esport Open III þar sem keppt verður á Playstation í leiknum NBA2K í lok næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem KKÍ og Ísland tekur þátt í rafíþróttamóti á vegum FIBA.

Verið er að setja saman 7 manna landslið Íslands sem mun svo keppa á föstudeginum 23. apríl í riðli með þrem öðrum liðum. Alls eru fjórir riðlar með fjórum liðum í Evrópudeildinni. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í 8-liða úrslitin sem leikin verða á laugardeginum 24. apríl og fjögur bestu fara í lokaúrslit á sunnudegi. 

Ísland er í riðli með Kýpur, Bosníu og Serbíu og verður hægt að fylgjast með keppinni beint á netinu á miðlum FIBA (Youtube, Facebook og Twitch) undir merkinu #FIBAesportsOpen

Heimasíða mótsins:
fiba.basketball/esports/open3/2021