10 maí 2021Leikið var til úrslita í DHL-höllinni í Vesturbænum í 7. flokki drengja um helgina. Það var Stjarnan sem stóð uppi sem sigurvegari þar sem þeir unni alla leikina sína og varð liðið þar með Íslandsmeistari 2021. Með Stjörnunni léku um helgina og urðu í 2.-5. sæti KR, Njarðvík, Grindavík og UMFK. Þjálfari liðsins er Óskar Þór Þorsteinsson.

KKÍ óskar strákunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn!