10 maí 2021

Úrslitamót 7. flokks stúlkna var leikið í Mathús Garðabæjar-höllinni í Garðabæ um helgina. Það var lið Stjörnunnar sem fór með sigur af hólmi en stelpurnar unnu alla sína leiki og urðu Íslandsmeistarar 2021. KR varð í öðru sæti og þar á eftir Grindavík, Keflavík og Njarðvík. Þjálfari liðsins er Danielle Rodriguez.

KKÍ óskar stelpunum og Stjörnunni til hamingju með titilinn en hann er merkilegur fyrir þær sakir að þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill sem kvennaflokkur Stjörnunnar vinnur í sögu félagsins!